06.11.2013

Lífeyrisgáttin kynnt á opnu húsi í gær

Það var ánægjulegt að fá tækifæri til að kynna Lífeyrisgáttina fyrir fróðleiksfúsum sjóðfélögum á opnu húsi í gær á skrifstofu sjóðsins, Suðurlandsvegi á Hellu og í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni. Lífeyrisgáttin var kynnt fyrir gestum, auk þess sem þeim gafst kostur á að sækja um aðgang að Netbanka Arion banka á staðnum og skoða Lífeyrisgáttina þar með leiðsögn ráðgjafa. Það kom mörgum á óvart að sjá á einum stað þau réttindi sem safnast hafa í samtryggingarsjóði þeirra yfir starfsævina og voru sjóðfélagar ekki síst hissa á að sjá réttindi frá þeim tíma sem þeir voru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Rifjaði það jafnvel upp gamlar minningar svo að úr urðu líflegar umræður um síldarárin í bland við lífeyrismál.
Nánar um Lífeyrisgáttina hér.

Til baka