09.10.2013 16:29

Líflegur fræðslufundur

Það var ánægjulegt að sjá hve margir lögðu leið sína í höfuðstöðvar Arion banka í gær til að fræðast um lífeyrismál. Markmið fundarins Lífeyrismál á mannamáli var að kynna lífeyrismál almennt og lífeyriskerfið á Íslandi og vekja þátttakendur þannig til umhugsunar um framtíðina. Meðal annars var farið yfir þrjár stoðir lífeyriskerfisins, samtryggingarsjóði, séreignarsjóði, eignir og skuldbindingar sjóðanna, mismunandi fjárfestingarstefnur og spá um lýðfræðilega þróun næstu áratuga. Talsverðar umræður sköpuðust meðal fundargesta í lok fundar.

Fyrirlesari var Jón L. Árnason rekstrarstjóri Lífeyrisauka og framkvæmdastjóri EFÍA og LSBÍ.

Fræðslufundaröðin heldur áfram, næst verður fjallað um útgreiðslur úr lífeyrissparnaði þriðjudaginn 12. nóvember, nánar auglýst síðar.

Til baka


09.05.2022 08:43

Ársfundur 2022

05.05.2021 11:27

Ársfundur 2021

05.05.2020 11:47

Ársfundur 2020

29.04.2019 14:45

Ársfundur 2019

12.02.2019 14:18

Sjóðfélagayfirlit

10.08.2018 12:51

Sjóðfélagayfirlit

04.05.2018 14:34

Ársfundur 2018

07.02.2018 13:56

Sjóðfélagayfirlit

23.01.2018 12:14

Sjóðfélagafundur

08.09.2017 11:50

Sjóðfélagayfirlit

14.06.2017 14:51

Aukafulltrúafundur 2017

15.05.2017 11:47

Ársfundur 2017

14.02.2017 14:58

Yfirlit sjóðfélaga

09.05.2016 14:02

Ársfundur 2016

30.04.2015 11:11

Ársfundur 2015

06.05.2014 09:21

Ársfundur 15. maí