28.01.2013

Kynningarfundur þriðjudaginn 29. janúar kl. 20:00

Kynningarfundur fyrir sjóðfélaga verður haldinn þriðjudaginn 29. janúar kl. 20:00 í Verkalýðshúsinu á Hellu. Farið verður yfir helstu atriði sem koma til með að breytast vegna samstarfsins við Arion banka sem og þróun sjóðsins árið 2012.

Fundurinn stendur yfir í um klukkustund og eru kaffiveitingar í boði.

Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta!

Til baka